Almennar upplýsingar

1. Almennar upplýsingar.

Uppboðskerfið Fisknet samanstendur af tölvukerfinu Tengli sem er sölu- og uppgjörskerfi Reiknistofu fiskmarkaða hf (RSF) og uppboðsklukku sem hönnuð er af Aucxis Trading Systems í samvinnu við RSF.

Í Tengli er haldið utan um allar upplýsingar viðskiptamanna bæði kaupendur og seljendur, þar eru skráðar inn söluupplýsingar og prentaðir út reikningar og afreikningar.

Uppboðsklukkan er verkfæri sem gerir RSF það mögulegt, að birta þátttakendum í uppboði upplýsingar um það sem er til sölu á aðgengilegan og skýran hátt, auk þess sem kaupendum er gert kleift með tengingu við Internetið að taka þátt í uppboði frá vinnustað eða heimili.

Í stuttu máli gerist það þannig að Fisknet sækir upplýsingar í Tengil og birtir kaupendum, bæði upplýsingar um það sem er til sölu í væntanlegu uppboði, auk upplýsinga um peningalega stöðu viðkomandi kaupanda. Meðan á uppboði stendur sækir Fisknet upplýsingar um stöðu ábyrgðar, breytingar sem kunna að verða á stæðulista, heimildir kaupenda o.fl. Einnig skilar klukkan öllum söluupplýsingum yfir í Tengil jafnóðum og stæður seljast.

Klukkan frá Aucxis er notuð við uppboð víða um heim og hefur sannað sig sem áreiðanlegur kostur.  Kaupendur sem uppfylla þau skilyrði sem RSF gerir til tölvu og tengibúnaðar eiga allir að hafa jafna möguleika á að bjóða í, hvar svo sem þeir eru staddir á landinu.

1.1. Tölvu og tengibúnaður.

RSF gerir tillögu að ákveðnum tölvu og Internettengibúnaði, tillagan er gerð í þeim tilgangi að tryggja kaupendum hámarksöryggi og til að lágmarka truflanir og tafir í uppboðum. RSF mælir með því að kaupendur komi sér upp tölvu sem ekki verður nýtt til annars en að taka þátt í uppboði.

Mælt er með tölvu sem er:

  • Með Pentium4 örgjörva eða sambærileg
  • 256 MB innra minni
  • Windows 2000 eða XP (vegna stöðugleika)
  • Ekki er þörf á miklu diskaplássi
  • Skjár verður að vera með upplausn 1024 x 768 punktar.

Mælt er með Internettengingu sem er:

  • ADSL+ tenging eða
  • ISDN upphringiaðgang

Varast skal:

  • að hafa í tölvunni forrit sem birta fyrirvaralaust skjámyndir (pop-up) og trufla þannig aðra starfsemi
  • að hafa í gangi forrit sem geta verið að sækja út á Internetið (uppfærsla á vírusvarnarforritum, póstforrit, oþh)
  • að hafa skjásvæfu í gangi
  • að hafa "power settings" stillt þannig að tölvan leggist í dvala eftir ákveðinn tíma
  • sum vírusvarnarforrit.  Þau geta truflað.  Veljið það í samráði við RSF

Þrátt fyrir að RSF mæli með ákveðnum búnaði þá er hægt að komast af með hægvirkari tengingu og minni tölvu en gerð er tillaga um hér að ofan.  Það skal samt ítrekað að mælt er með því að þeir sem taka daglega þátt í uppboðum noti besta fáanlega búnað.

Lágmarkskrafa um búnað er:

  • Tölva með Pentium3 örgjörva
  • 128 MB minni
  • Windows 98 (Windows 95 gengur ekki)
  • Skjá með upplausn 1024 x 768 punktar.

Lágmarkskrafa um Internettengingu er:

  • Almenn ISDN Internettenging
  • ADSL Internettenging
  • Hvorki verður hægt að notast við analogue módem (56Kb) né farsíma

Varðandi kaup á tölvubúnaði þá er sá búnaður sem RSF mælir með fáanlegur hjá flestum tölvuverslunum.

Varðandi tengingu og uppsetningu búnaðar þá er kaupendum bent á þá þjónustuaðila sem sérhæfa sig í tölvutengingum.

1.2. Aðgangur og bankaábyrgð.

Til að fá aðgang að Fiskneti þarf auk lágmarks tölvu- og tengibúnaðar, bankaábyrgð.

Gild bankaábyrgð er skilyrði þess að kaupandi geti tekið þátt í uppboði, bankaábyrgð fæst hjá viðskiptabanka kaupanda og tekur gildi frá þeim tíma sem hún berst RSF. Einnig getur kaupandi greitt fyrirfram greiðslu til að fá þátttöku í uppboðinu. RSF færir upphæð ábyrgðar inn í Tengil enda standist hún þær kröfur sem RSF gerir um slíkar ábyrgðir.

Áður en uppboð hefst flytjast upplýsingar um ábyrgðarstöðu allra kaupanda frá Tengli yfir í Fisknet. Meðan á uppboði stendur sér tölvubúnaður um að uppfæra ábyrgðarstöðu t.d. ef um innborgun er að ræða. Kaupandi getur aldrei keypt fyrir hærri upphæð en ábyrgðarstaðan segir til um.

Kaupandi sem er á válista getur ekki boðið í.

Gjaldskrá RSF vegna kaupa á fiskmörkuðum er hér.


Þeir fiskkaupendur (undirkaupendur) sem vilja láta aðra bjóða í fyrir sig, verða að sækja sérstaklega um það. Á www.rsf.is/sida/fisknet er form sem hægt er að prenta út. Undirkaupandi skal fylla það út og faxa á skrifstofu RSF.

Fleiri upplýsingar fyrir nýja kaupendur eru hér