Verklagsreglur um framkvæmd uppboðs og viðbrögð við ófyrirsjáanlegum aðstæðum
1. Markmið
1.1. Verklagsreglur
um framkvæmd uppboðs eru settar til að skilgreina betur en verið hefur
starf uppboðshaldara og annarra starfsmanna RSF í breyttu
uppboðsumhverfi. Starfshætti sem ætlað er að gæta hagsmuna allra sem
koma að uppboðinu.
1.2. Seint verður hægt að halda uppboð svo öllum
líki allt sem gert er. Starfsfólk RSF og ekki síst uppboðshaldari þarf
oft að taka ákvarðanir til að óþarfa tafir verði ekki á uppboðinu.
Ákvarðanir þessar eru teknar með tilliti til aðstæðna og umhverfis
hverju sinni og útilokað er að þær falli að hagsmunum allra. Ætíð er þó
reynt að gæta fullrar sanngirni.
1.3. Í síbreytilegu umhverfi
fiskmarkaðanna er nauðsynlegt að verklagsreglur um framkvæmd uppboðs
verða endurskoðaðar svo oft sem þurfa þykir. Til að svo megi verða er
nauðsynlegt að notendur láti RSF vita um það sem þeir telja að betur
megi fara.
1.4. Fullur einhugur og vilji starfsmanna RSF er um að
uppboð með FISKNETI gangi sem greiðast og þjóni sem allra best þeim sem
að því koma.
2. Almennt um uppboð
2.1. Uppboðshaldari
á ekki að bjóða í fyrir kaupendur. Í neyðartilfellum getur hann tekið
við tilboðum frá kaupendum og sett þau inn áður en uppboð hefst. Aðrir
starfsmenn RSF geta boðið í fyrir kaupendur, en þá aðeins í
neyðartilfellum.
2.2. Uppboðshaldari skal fara með allar upplýsingar um kaupendur sem trúnaðarmál.
2.3. Útbúinn
skal gátlisti þar sem fram koma þau atriði sem nauðsynlegt er talið að
kanna til að tryggja greiðan framgang uppboðs, (ástand tenginga og
tölvubúnaðar, uppfærslur o.fl.).
2.4. Á gátlista skal jafnframt koma
fram hvaða viðbrögð skal viðhafa við frestun eða stöðvun uppboðs, svo
sem um tilkynningar til kaupenda.
2.5. Tæknimaður skal ætíð vera til
taks hjá RSF meðan uppboð fer fram. Ef uppboð eru haldin á laugardögum
eða öðrum lögbundnum frídögum skal vera hægt að ná í tæknimann á
bakvakt.
2.6. Tryggt skal að kaupendur geti hringt og fengið svörun hjá RSF meðan á uppboði stendur.
2.7. Ef
minniháttar bilun eða vafaatriði sem snerta uppboðið koma upp skal
uppboðshaldari taka ákvörðun um frekari framgang uppboðs og tilkynna
það kaupendum. Ef um meiriháttar vafaatriði og eða bilun er að ræða
skal stjórnandi hafa samráð við yfirmenn RSF varðandi áframhald uppboðs.
2.8. Áríðandi
er við alla ákvarðanatöku um breytingar á framgangi uppboðs að
uppboðshaldari stöðvi uppboðið og gefi sér tíma til að meta ástandið.
2.9. Allar
breytingar á áður auglýstum uppboðstíma, tafir, eða önnur afbrigði frá
hefðbundnu uppboði skulu tilkynntar kaupendum tafarlaust.
3. Undirbúningur
3.1. Í
byrjun vinnudags skal uppboðshaldari kanna ástand FISKNETS, kanna
tengingar og ganga úr skugga um að allt starfi eðlilega (ath.gátlista).
3.2. Tafarlaust skal láta tæknimann RSF vita ef eitthvað er óeðlilegt við þá þætti sem athugaðir eru.
3.3. Stæðulista skal loka 30 mín. fyrir uppboð og gera hann aðgengilegan fyrir kaupendur.
3.4. Eftir
lokun stæðulista yfirfer uppboðshaldari byrjunarverð sem skráð eru í
FISKNET. Einnig skal hann lesa stæðulistann yfir og kanna hvort
einhverjar stæður geti haft óeðlileg áhrif á byrjunarverð. Hafa ber í
huga að markaðsaðstæður geta breyst skyndilega (skortur á fiski, aukin
eftirspurn, o.þ.h.) og verður að miða byrjunarverð við það.
3.5. Eftir
að undirbúningur uppboðs hefst, og á meðan uppboð stendur yfir, skal
valda uppboðshaldara sem minnstri truflun. Ef koma þarf tilkynningum
til hans skal starfsmaður RSF taka við þeim og koma þeim á framfæri.
3.6. Uppboð skal hefjast á áður auglýstum uppboðstíma.
3.7. Ef
uppboð tefst af einhverjum ástæðum skal það tilkynnt tafarlaust á
fyrirfram ákveðinn hátt sem kaupendum hefur þegar verið kynnt. Á
FISKNETI, á heimasíðu RSF og/eða með textaskilaboðum til notenda.
4. Framkvæmd
4.1. Eftir að uppboð hefst skal uppboðshaldari fylgjast vel með byrjunarverðum.
4.2. Uppboðshaldari
skal aldrei breyta söluupplýsingum án samráðs við viðkomandi fiskmarkað
og kaupanda. Slíkar breytingar skulu skráðar svo og ástæðan. Í
flestum tilfellum skal kaupandi snúa sér beint til viðkomandi
fiskmarkaðar ef hann óskar eftir breytingu á kaupum sínum.
4.3. Ef minnsti vafi leikur á að uppboð fari eðlilega fram skal uppboð stöðvað umsvifalaust og boð send um það.
4.4. Ef uppboð stöðvast skal það tafarlaust tilkynnt á fyrirfram ákveðin hátt.
4.5. Uppboðshaldari getur boðið stæðu upp aftur ef:
4.5.1. Klukka byrjar talningu óeðlilega lágt eða hátt miðað við meðalgangverð á viðkomandi fisktegund.
4.5.2. Uppboð er truflað viljandi eða óviljandi.
4.5.3. Uppboðshaldara verða á mistök sem hafa áhrif á verðmyndun.
4.5.4. Eitthvað gerist í uppboði sem takmarkar möguleika kaupenda til þátttöku.
4.5.5. Kaupandi óskar þess enda berast boð um það tafarlaust og ástæða sé næg að mati uppboðshaldara.
4.6. Ef
uppboðshaldari hefur rökstuddan grun um að kaupandi trufli uppboð af
ásettu ráði, þá hefur hann heimild til að útiloka viðkomandi frá
uppboðinu með því að setja hann á válista.
4.7. Nauðsynlegt er að
taka ákvörðun um endurupptöku boða strax, svo ekki sé hætta á að þeir
sem keyptu boðin séu hættir þátttöku og farnir frá tölvum.
5. Að loknu uppboði
5.1. Uppboðshaldari skal loka uppboði.
5.2. Uppboðshaldari skal halda skrá um framgang uppboðs og jafnframt vista söluupplýsingar.
5.3. Athugasemdir sem kunna að berast að loknu uppboði skulu skráðar og þeim vísað til úrlausnar hjá þeim sem við á.
5.4. Uppboðshaldari skal vera fiskmörkuðunum leiðbeinandi um það sem betur má fara við innslátt í Tengil.
6. Viðbrögð við vá
6.1. Hjá RSF
skal vera til taks neyðaráætlun þannig að tryggt sé að uppboð verði
haldið. Í neyðaráætlum skulu koma fram viðbrögð við þeim aðstæðum sem
hugsanlega kunna að koma upp, svo sem rafmagnsleysi, rof á símalínum,
eldsvoði eða önnur ófyrirséð vá
6.2. Kaupendur skulu upplýstir um það hvar þeir geta nálgast upplýsingar ef slíkar aðstæður koma upp.
6.3. Verði bilun í tölvubúnaði skal varabúnaður vera til taks þannig að hægt sé að halda uppboði áfram með sem minnstum töfum.
6.4. Neyðaráætlun skal prófuð reglulega t.d. einu sinni í mánuði.
6.5. Verklagsreglur þessar skal endurskoða svo oft sem þurfa þykir.

English



