Fréttir

Enn hækkar verðið

 - 7. des, 2009

Meðalverðið hækkaði í nóvember og var 278,19.  Þetta er hækkun frá metverði í október, en aðeins um 10 aura.
Þetta er þ.a.l. hæsta meðalverð í einum mánuði sem sést hefur.
Meðalverðið í nóvember 2008 var 213,14.           
Hækkunin er 30,5 % milli ára.



Verðmæti sölunnar í nóvember sl. var 1.913 milljónir.  17,9 % meira en í nóvember 2008. 

Selt magn í nóvember var með minnsta móti og var 6.876 tonn.  Þetta er 9,7 % minna en í nóvember 2008.

 

Smellið á myndir til að stækka.


Hægt er að sjá ýmsar tölfræðiupplýsingar á síðu RSF, www.rsf.is. 
Einnig er hægt að prenta út magn, verðmæti og meðalverð á hinum ýmsu tegundum á hinum ýmsu mörkuðum á síðunni.  http://rsf.is/sida/samantekt