News

Heimasíða FMBS.

 - 25. mar, 2010

Fiskmarkaður Bolungarvíkur og Suðureyrar hefur sett á vefinn nýja heimasíðu. Á heimsíðunni www.fmbs.is er auk upplýsinga um opnunartíma og gjaldskrá FMBS, upplýsingar um sjósókn og afla.  Þá eru tenglar inn á vestfirska vefi.  Gott framtak og til eftirbreytni fyrir þá fiskmarkaði sem eiga eftir að koma sér á framfæri á veraldarvefnum. 

Sala 2 fyrstu mánuði ársins tæplega 15% minni en 2009

 - 16. mar, 2010

Seld voru 16.981 tonn í janúar og febrúar sem er 14,9% minna en í fyrra, 19.947 tonn.  Stórfelldur niðurskurður á aflaheimildum er þegar farinn að hafa sín áhrif. 
Útlit er fyrir frekari samdrátt ef ekki kemur til verulegra aukningar á aflaheimildum.

Read more

Áskorun til sjávarútvegsráðherra

 - 9. mar, 2010

Með stórfelldum niðurskurði á aflaheimildum s.l. haust er vegið að grundvallar starfssemi fiskmarkaða í landinu. Afleiðingar þessa mikla niðurskurðar eru tvennskonar hvað varðar framboð á fiskmörkuðum. Margar útgerðir eru nú í byrjun marsmánaðar að stöðvast og einnig hefur niðurskurðurinn þær afleiðingar að nánast ekkert framboð er á leigumarkaði með aflaheimildir. Fjöldi fiskvinnslufyrirtækja sem byggja vinnslu á hráefnisöflun með kaupum á íslenskum fiskmörkuðum eru nú í mjög alvarlegri stöðu og sjá í raun ekki fram á annað en fjöldauppsagnir fiskvinnslufólks. Slíkt mun hafa alvarlegar afleiðingar á mörkuðum okkar erlendis með íslenskar sjávarafurðir.

Read more

Áætlun Herjólfs

 - 8. mar, 2010

Viðskiptavinum Fiskmarkaðs Vestmannaeyja er bent á að kynna sér vel áætlun Herjólfs. Hægt er að nálgast áætlunina beint frá heimasíðu okkar með því að smella á merki Eimskips hægra megin á síðunni.

Read more

43% hækkun á meðalverði milli ára í janúar

 - 6. feb, 2010

Meðalverð
Meðalverð á fiskmörkuðunum í janúar var 284,72 kr sem er 43% hærra en í sama mánuði í fyrra (199,19).  Þetta er einnig hæsta meðalverð sem sést hefur i einum mánuði frá upphafi.

 

Read more

Skráning á SMS lista RSF

 - 2. feb, 2010

5. janúar síðastliðiinn varð bilun í neti RSF sem olli töfum á uppboði í tæpar 2 klst.  Bilunin var slík að einungis hluti kaupenda RSF náði að skoða vefsíðu RSF en þar var hægt að fylgjast með fréttum af biluninni.  Æskilegt er að ná til sem flestra ef slík bilun verður.  Til að auðvelda fréttaflutning í slíkum tilvikum hefur RSF ákveðið að safna saman farsímanúmerum allra sem hlut eiga að máli þannig að hægt sé að senda SMS á þá.  Það sem viðskiptamenn RSF þurfa að gera er að skrá sig á einkaaðgangi RSF fyrir þessum sendingum (www.rsf.is – “Mín síða”) .    Einnig er nauðsynlegt að hafa þessar upplýsingar réttar og hvetjum við því alla að skrá breytingar sem verða á þessum númerum jafnóðum og þær verða.