Viðmót
3. Uppboðsskjárinn.
Mynd 1 - Smelltu á myndina til að fá stærri útgáfu
Uppboðsklukkan birtist kaupendum í Windows umhverfi, og eru aðgerðir framkvæmdar með lyklaborði eða mús.
3.1. Stæðulisti.
Stæðulisti birtist kaupendum í svipuðu formi og í útprentun. Virka stæðan,
þ.e. stæðan sem verið er að bjóða upp, er auðkennd en fjórar næstu
stæður koma þar fyrir ofan. Að lokinni sölu hverfur seld stæða af skjá
en næsta stæða færist niður og er þá tilbúin til uppboðs.
Á stæðulista má sjá eftirfarandi upplýsingar:
3.1.1. Stæðunúmer [St.nr] :
Stæðunúmer
á skjá er það sama og á útprentuðum stæðulista, byrjað er að bjóða upp
stæðu nr. 1 og síðan koll af kolli þar til uppboði lýkur. Stæðunúmer er
mikilvægt því það er m.a. notað við afgreiðslu og rekjanleika.
Stundum
vantar stæðunúmer inn í seríuna, t.d. getur röðin birst sem ..., 34,
35, 40, 41, 42, ... Ástæðan er sú að verið er að sameina afla af
mismunandi seljendum í eina stæðu og í þessu tilfelli er verið að
sameina stæður 35 - 39
3.1.2. Seljandi [Selj] :
Hér sést nafn seljanda eða stytting á nafni.
3.1.3. Höfn/markaður [Höfn/mark] :
Staðsetning sýnir löndunarhöfn þess sem verið er að bjóða upp og einnig á hvaða markaði fiskurinn er við sölu.
3.1.4. Aldur [Al] :
Aldur í dögum.
3.1.5. Athugasemd [Aths] :
Skilaboð um stæðu frá viðkomandi fiskmarkaði
3.1.6. °C [°C] :
Hitastig í fiski við móttöku á markað.
3.1.7. Frágangur [Frág] :
Frágangur
á fiski viðkomandi skips eða löndunar/slæginarþjónustu. Einnig sést hér
lýsing afurða t.d. saltað, reykt, þurrkað o.sv.frv.
3.1.8. Veiðarfæri [V.færi] :
Sýnir tegund veiðarfæris.
3.1.9. Tegund [Teg] :
Hér kemu nafn fisktegundar eða afurða sem verið er að selja
3.1.10. Slægt [S/Ó] :
Sýnir hvort fiskur er slægður eða óslægður
3.1.11. Stærð [Stærð] :
Sýnir
stærðarflokk, þegar notaðar eru lýsingar svo sem bl.g. – bl.st. – smár.
o.sv.frv. þá er átt við að viðkomandi stæða hafi að geyma fisk sem að
meðaltali fellur innan viðkomandi flokks.
Sé hinsvegar stærðin
gefin til kynna með tölustöfum svo sem 2-3. 3-4. 8-12. eða 0.35-0.45 þá
er átt við að viðkomandi stæða sé flokkuð og hafi að geyma fisk sem
fellur allur innan viðkomandi stærðarmarka.
3.1.12. Meðalþyngd [Mþ] :
Meðalþyngd fisks í viðkomandi stæðu hvort sem hann er flokkaður eða ekki.
3.1.13. Einingar/Lágmarks einingar [E/Lágm] :
Fjöldi
eininga í stæðu/lágmarksfjölda eininga sem seldur er í hverju boði,
vilji kaupandi taka fleiri einingar en lágmark segir til um þá verður
hann að taka margfeldi af lágmarksfjölda.
dæmi: 12/3 kaupandi verður þá að taka 3, 6, 9 eða 12 og aldrei færri en 3
dæmi: 16/4 kaupandi verður þá að taka 4,8, 12 eða 16 og aldrei færri en 4
dæmi: 16/1 kaupandi ræður einingafjölda sem hann kaupir frá 1-16
3.1.14. Meðalþyngd eininga [Kg/E] :
Meðalþyngd í hverri einingu (ker, kassi, ...).
3.1.15. Heildarþyngd [Brúttó/Nettó] :
Heildarþyngd í stæðu.
3.2. Klukkuskjárinn.
Klukkuskjárinn samanstendur af klukkuhring og upplýsingareitum.
3.2.1. Klukkuhringur.
Á
klukkuhringnum birtist depill sem færist til rangsælis og telur verð
niður frá þeirri byrjunarupphæð sem uppboðshaldari ákveður.
3.2.2. Að stöðva klukku.
Boðið er í með því að stöðva klukkuna. Það er gert með því að ýta á bilslá (space bar) á lyklaborðinu. Á meðan klukkan telur er gefið til
kynna í litareit hvort kaupandi og hans undirkaupendur geta boðið í það
lágmark sem til sölu er hverju sinni , þ.e. hvort ábyrgðin dugi fyrir
minnstu einingu á því verði sem skjárinn sýnir. Kaupandi getur aldrei
stöðvað klukkuna ef ábyrgð hans dugir ekki fyrir minnstu einingu að
viðbættum markaðskostnaði og lögboðnum gjöldum svo sem vsk.
Fyrir þá kaupendur sem ekki eru með undirkaupendur er málið einfalt: einungis að ýta á bilslá og klukkan stöðvast.
Fyrir
þá kaupendur sem eru að kaupa fyrir aðra, þá er hægt að skipta á milli
undirkaupanda þó klukkan gangi. Áríðandi er að hafa í huga að áður en
klukkan er stöðvuð verður að vera búið að ákveða fyrir hvern á að bjóða
í, eftir að klukka hefur verið stöðvuð er ekki hægt að skipta um
kaupanda.
3.2.3. Að kaupa.
Eftir að klukkan hefur verið stöðvuð af kaupanda þá kemur tvennt til greina:
- Ekki er hægt að velja einingafjölda út af því að stæða er einungis ein eining, lágmarksfjöldi eininga er sá sami og heildarfjöldi eininga, eða þá að kaupandi hefur ekki efni á nema minnstu einingu. Í þessu tilfelli eru kaup framkvæmd sjálfkrafa án frekari afskipta kaupanda.
- Hægt er að velja um fjölda eininga. Þegar kaupandi stöðvar
klukku birtist gluggi með tímakvarða. Hér er boðið upp nokkra
möguleika, þó innan ákveðinna tímamarka.
- Lágmarkseiningu er hægt að kaupa með því að ýta á [Enter]
- Einingafjölda er hægt að velja með því að slá inn fjölda eininga og [Enter]
- Ef kaupandi velur einingafjölda sem er færri en lágmarks eining þá lítur Fisknet á það sem mistök af hálfu kaupanda, á skjánum birtist texti sem gefur það til kynna og er honum síðan seld lágmarkseining
- Ef kaupandi velur einingafjölda umfram ábyrgð þá birtast skilaboð sem segja ,,þú getur að hámarki keypt X einingar” og síðan eru þær einingar seldar kaupanda
- Ef kaupandi velur einingar sem eru ekki margfeldi af lágmarksfjölda, t.d. velur 5 þegar lágmark er 2, þá eru honum seldar fjöldi eininga sem er næsta margfeldi fyrir neðan innslegið gildi, í þessu tilfelli 4.
- Alltaf þegar Fisknet leiðréttir kaupanda þá er það endanlegt
- Hægt er að nota flýtihnappa.
- – (mínus) kaupandi velur lágmarks-einingu.
- + (plús) kaupandi velur allar einingar.
Ef kaupandi framkvæmir ekki val innan þeirra tímamarka sem
uppboðshaldari setur þá er alltaf seld á kaupanda minnsta eining í
viðkomandi boði
3.2.4. Að setja inn viðmiðunarverð og merkja stæður.
Hægt
er að fara inn á stæðulistann í Fiskneti og merkja stæður og/eða að
setja inn viðmiðunarverð. Þessi möguleiki er hugsaður sem hjálpartæki
kaupenda á uppboðinu. 
Mynd 2 - Smelltu á myndina til að fá stærri útgáfu
Að merkja stæður:
Farið
er inn á stæðulistann með [F6]. Hægt er að fletta upp og niður með
[Örvatökkum] og [Page-Up/Down] tökkum. Stæða er valin og merkt með því
að ýta á bil slá, við það fær stæðan grænan bakgrunn. Þegar stæðan
síðan birtist á stæðulista uppboðsklukku, þá er hún auðkennd með grænum
lit, jafnframt er kaupanda gefið til kynna með píp hljóði að stæðan sem
hann valdi sé komin á skjáinn.
Athugið að til þess að þetta
píp hljóð heyrist þá þarf að vera opið fyrir hljóð í tölvunni (Sjá
Control Panel à Sounds and Audio devices à Sounds. Það er “Default
beep” sem er notað fyrir klukkuna).
Að setja viðmiðunarverð:
Á
sama hátt og áður er farið inn á stæðulistann, stæða valin og sett inn
verð í [Viðmiðunarverð], þegar stæðan kemur til uppboðs þá birtist á
klukkuhring kaupanda appelsínugulur depill og strik við það verð sem
valið var.Til að fara út úr stæðulista og aftur í uppboð er smellt á
[Loka] á skjámynd eða [Esc]
Þó þessir valkostir séu notaðir þá
hafa þeir á engan hátt áhrif á uppboðið, þetta er aðeins sett inn
kaupendum til þæginda. Áðurnefndar upplýsingar birtast einungis á skjá
viðkomandi kaupanda en ekki hjá öðrum.
3.2.5. Að takmarka stæðulistann
Hægt er að velja úr stæðulista fisktegund eftir stærð, höfnum ofl.
Þetta
er gert með því að fara efst í stæðulistann [F6] undir nafni á flipa,
t.d. Fiskteg, er lítið flettitákn. Þegar smellt er á það getur þú valið
á milli allra fisktegunda sem eru í uppboði, á sama hátt getur þú flett
öðrum gildum og þrengt þannig stæðulistann sem þú ætlar að vinna með.
T.d.
ef þú vilt einungis sjá stóran þorsk á stæðulistanum þá byrjarðu á að
fletta í fisktegund og velja þorsk. Því næst flettirðu í
stærðardálkinum og velur viðeigandi stærðarflokk. Þar með er
stæðulistinn á skjánum takmarkaður við ákveðna stærð af þorski.
3.3. Upplýsingareitir inn í klukkuhring.
3.3.1. Stæða [Stæða] :
Sýnir númer þeirrar stæðu sem er í sölu.
3.3.2. Verð [Verð] :
Rúllandi tala sem fylgir bendli á klukkuhring. Þegar klukka er stöðvuð sést uppboðsverð. Kallað verð 1.
3.3.3. Mitt verð [Mitt verð] :
Uppboðsverð
að viðbættum kostnaði sem kaupandi getur sett inn, t.d.
flutningskostnaði, slægingarkostnaði o.fl. Kallað verð 2. Kaupandi
getur sett inn bæði kostnað í kr/kg og einnig % álag. Forsendum er hægt
að breyta með [SF2]. Þessar forsendur eru:
- Gjaldmiðill (t.d. 85 ÍSK til að umbreyta yfir í Evrur)
- Kostnaður við hverja kaupafærslu, kostnaður sem leggst þá á verð 1
- Kostnaður við hvert keypt kíló getur verið tvenns konar
- Annars vegar getur hann verið tengdur höfn/staðsetningu þess sem keypt er t.d. flutningskostnaður. Þennan kostnað er hægt að skilgreina þannig að þegar kaupandi á viðskipti við seljanda á ákveðinni höfn þá bætist sjálfkrafa við áður innsettur flutningskostnaður.
- Hinsvegar fastur kostnaður t.d. markaðskostnaður.
- Hlutfallskostnaður, bætir kostnaði í % við verð 1
3.3.4. Einingar [Fjöldi eininga] :
Sýnir heildarfjölda eininga í stæðu í upphafi boðs og síðan þær einingar sem eftir verða að loknu hverju boði.
3.3.5. Lágmark [Lágmark] :
Sýnir
þann lágmarksfjölda eininga sem kaupanda er boðið upp á að taka úr
viðkomandi stæðu, kaupandi verður að taka þessar einingar eða margfeldi
af þeim
3.3.6. Kaupandi [Kaupandi] :
Sýnir kaupandanúmer þess sem á boðið.
3.3.7. F6 [F6]
Opnar stæðulista.
3.3.8 F7. [F7] :
Eyðir út tilboði í þá stæðu sem verið er að selja (virk stæða).
3.3.9. F8 [F8] :
Eyðir út öllum tilboðum í viðkomandi uppboði.
3.4. Gluggar neðan við klukku.
Neðan við klukkuhringinn eru nokkrir reitir.
3.4.1. Fisknet [FISKNET] :
Sýnir hvort kaupandi er tengdur við Fisknet [OK] á bláum grunni. Ef ekkert samband er þá er reiturinn rauður
3.4.2. Samband [Samb] :
Hugbúnaður
Fisknet mun meta gæði tengingar og birta kaupanda þær upplýsingar með
litareit, þar sem grænt táknar fullkomið samband, síðan gult,
appelsínugult og að lokum rautt, en rautt táknar að kaupandi getur ekki
stöðvað klukkuna.
3.4.3. Kaupandi [Kaup] :
Sýnir
númer þess kaupanda sem skráður er inn. Í því tilfelli að einn aðili er
að kaupa fyrir fleiri undirkaupendur þá sýnir þessi skjár þann kaupanda
sem er virkur. Hafi kaupandi heimild til kaupa þá er reiturinn grænn,
sé heimild ekki fyrir hendi þá er reiturinn rauður.
3.4.4. Heimild [Heimild] :
Sýnir stöðu ábyrgðar hjá þeim kaupanda sem er virkur.
3.4.5. SF2 [SF2]:
Takki sem opnar stilliskjá fyrir innsetningu á kostnaði .
Mynd 3
Í þessum glugga getur kaupandi valið að setja inn fastan kostnað:
- Gjaldmiðil
- Gengi
- Kostnað á hverja færslu
- Kostnað á hvert kíló
- Hlutfallskostnað

Mynd 4
Í
þessum glugga getur kaupandi sett inn flutningskostnað. Þegar stæða frá
viðkomandi höfn er boðin upp bætist innsleginn flutningskostnaður ásamt
föstum kostnaði við uppboðsverð og birtist á klukkuskjá í reitnum [Mitt
verð]
Að loknu vali eru upplýsingar vistaðar á hörðum diski tölvunnar.
3.4.6. Undirkaupendur.
Kaupandi
getur boðið í fyrir aðra (undirkaupendur). Sækja þarf sérstaklega um
heimild þar sem undirkaupandi gefur yfirkaupanda leyfi til að bjóða í
fyrir sig. Við innskráningu á uppboð sér kaupandi upplýsingar um þá
undirkaupendur sem hann er skráður fyrir. Hægt er að skipta á milli
kaupenda með því að smella á tákn sem birtast á klukkuskjánum eða með
því að nota flýtihnappa:
0 = yfirkaupandi
1-9 = undirkaupendur
Um
leið og valinn er nýr undirkaupandi kemur fram í litareit (grænt-rautt)
hvort hann hefur heimild til að bjóða í og ábyrgðarstaða viðkomandi.
Ath.
Þó sá sem tengir sig inn á Fisknet hafi ekki heimild til að kaupa
sjálfur þá hindrar það ekki að hann geti boðið í fyrir sína
undirkaupendur.
Ef heimild undirkaupanda til að bjóða í breytist
meðan á uppboði stendur þá sér yfirkaupandi það ekki nema að skrá sig
út úr uppboði og skrá sig inn aftur.
4. Tilboð.
4.1. Að setja inn tilboð
Á
sama hátt og sett er viðmiðunarverð þá er einnig hægt að setja inn
tilboð. Farið er inn á stæðulistann með [F6] og valin sú stæða sem
bjóða á í. Í viðeigandi reiti er hægt að setja inn eftirfarandi
upplýsingar:
Tilboðsverð
Fjöldi eininga sem bjóða á í
Númer undirkaupanda
Síðan er aðgerðin staðfest.
Hægt er að eyða tilboði úr stæðulista með því að velja stæðu og smella síðan á reitinn [Eyða tilboði]
Fisknet
meðhöndlar tilboð á sama hátt og kaupandi væri sjálfur að stoppa
klukkuna, þó með þeirri undantekningu að ef virkur kaupandi og tilboð
stöðva klukkuna á sömu krónutölu þá fær virkur kaupandi boðið. Eftir að
tilboð hefur verið sett inn þarf kaupandi ekki að fylgjast frekar með
framgangi uppboðs. Tölvan verður að vera tengd og í gangi meðan á
uppboði stendur til að hægt sé að senda inn tilboð þegar stæðan kemur
til sölu.
Eftirfarandi hnappar eru tengdir tilboðshluta Fisknets:
[F6] Kaupandi opnar stæðulista
[F7] Kaupandi getur dregið tilboð í virka stæðu til baka
[F8] Kaupandi dregur öll tilboð, sem eftir á að vinna úr, til baka í viðkomandi uppboði
4.2. Tilboð [Tilboð]:
Vinstra
megin við klukkuskjá er reitur merktur tilboð. Um leið og stæða er
tekin til sölu þá birtist hjá viðkomandi kaupenda það tilboðsverð sem
hann hefur áður sett í stæðuna. Það birtist á eftirfarandi formi:
Fjöldi eininga * verð (undirkaupandi) , t.d.
1 * 180 (0) > 1 eining á 180 kr/kg fyrir undirkaupanda 0 (sjálfur)
3 * 240 (6) > 3 einingar á 240 krþ/kg fyrir undirkaupanda nr 6
Með
hnöppum í klukkuhring [F7] og [F8] getur kaupandi valið að eyða því
tilboði sem sést í glugganum eða að eyða öllum tilboðum sem hann hefur
áður sett inn.
5. Seldar stæður.
Vinstra
megin við klukkuhring er svæði merkt Seldar stæður, þar sér kaupandi
upplýsingar um 5 síðustu stæður sem lokið er við að selja.
5.1. Stæða [St.nr] :
Sýnir stæðunúmer.
5.2. Tegund [Fiskteg] :
Sýnir fisktegund.
5.3. Stærð [Stærð] :
Sýnir stærðarflokk viðkomandi fisktegundar.
5.4 .Slægt/óslægt [S/Ó] :
Sýnir hvort fiskur er slægður eða óslægður.
5.5. Einingar [Ein] :
Sýnir fjölda eininga í stæðunni.
5.6. Verð [Verð] :
Sýnir meðaltalsverð viðkomandi stæðu.
6. Kaup.
Neðan
við Seldar stæður er gluggi sem heitir Kaup. Tilgangur hans er að gera
kaupanda mögulegt að fylgjast með því sem keypt hefur verið á
viðkomandi uppboði (uppsafnað magn í hverri tegund) slá inn áætlun um
kaup og bera saman við uppsöfnuð kaup.
6.1. Tegund [Teg] :
Sýnir þá fisktegund sem kaupa á eða keypt hefur verið.
6.2. Kaup [Kaup] :
Sýnir það magn sem þegar hefur verið keypt af viðkomandi tegund.
6.3. Áætlun [Áætlun] :
Sýnir það magn sem áætlað er að kaupa.
6.4. Vantar [Vantar] :
Sýnir mismun á því sem keypt hefur verið og því sem áætlað er að kaupa.
6.5. Verð [Mv.] :
Sýnir meðalverð á viðkomandi fisktegund.
Neðst í glugganum er samtölusvæði þar sem fram koma samtölur úr yfirliggjandi dálkum.
Til að komast inn í skráningarglugga fyrir kaupáætlun er valið [F5]
Mynd 5
- + er notað til að skrá nýja línu á kauplistann
- – er notað til að eyða línu
- 5 er notað til að breyta línu
- a táknið er notað til að staðfesta
- X til að hætta við
- Í valglugga merkt Fisktegund er bæði hægt að fletta á milli tegunda og einnig að slá inn fyrstu stafi þeirrar tegundar sem leitað er að.
- Að loknu vali og staðfestingu er glugga lokað
Framkvæmdin við að slá inn kauplistann er því eftirfarandi:
- [F5] til að opna glugga
- + til að opna nýja línu
- Fisktegund – velja tegund úr flettiglugga
- Slá inn Markmið, kg sem viðkomandi ætlar að kaupa
- Staðfesta með V
- Endurtaka svo skref 2 – 5 fyrir hverja fisktegund.
Til að breyta kaupáætlun skal:
- Velja línu með því að smella á hana
- Ýta á 5 táknið
- Breyta Fisktegund og/eða Markmið
- Ýta á a
Til að henda út línu skal:
- Velja línu með því að smella á hana
- Ýta á –
- Staðfesta að þú viljir fella línuna niður
Meðan á uppboði stendur eru niðurstöður úr kaupáætlun geymdar á
tölvu kaupanda. Þegar kaupandi aftengist Fiskneti fær hann valglugga
með spurningu um hvort hann vilji eyða kaupagögnum (ef kaupandi vill
t.d. byrja með hreint borð á næsta uppboði sama dag) eða ekki. Þessi
vistun á upplýsingum er aðeins til skamms tíma því þegar tengst er
Fiskneti á nýjum degi þá eru upplýsingarnar sjálfkrafa hreinsaðar út.
7. Aðgerðastika.
Á aðgerðastiku efst á klukkuskjá eru eftirfarandi hnappar:
7.1. Skrá [Skrá]:
Í skrá eru hægt að fletta á milli stillinga sem flestar eru fyrir á lyklaborði.
7.2. Undirkaupandi [U.kaup] :
Sýnir þá undirkaupendur sem tengdur kaupandi hefur heimild til að kaupa fyrir.
7.3. Tilboð [Tilb] :
[F6] Opnar stæðulista
[F7] Eyðir tilboði í þá stæðu sem verið er að bjóða upp
[F8] Eyðir öllum tilboðum sem gerð hafa verið.
7.4. Útprentanir [Útprentanir] :
Tengir kaupanda við útprentunarsíðu, þar er hægt að velja nokkra staðlaða útprentunarmöguleika sem eru eftirfarandi
- Prenta allan stæðulistann
- Prenta stæðulista eftir fiskegundum og/eða mörkuðum.
- Nýleg kaup (fiskkaupalisti). Til að prenta út kaup dagsins er farið í Nýleg kaup á prentlista, þar þarf kaupandi að slá inn notandanafn og lykilorð eins og í Einkaaðgangi.
7.5. Klukkur [Klukkur] :
Ef hægt verður að
velja um fleiri en eina uppboðsklukku þá koma klukkutáknin fram á
aðgerðarstiku, kaupandi getur valið á milli klukkna með því að smella
með músinni á viðkomandi klukkutákn, þegar bendillinn er settur yfir
klukkutáknið kemur fram nafn á viðkomandi uppboðsklukku. Þegar kaupandi
tengist Fiskneti þá tengist hann sjálfkrafa klukku 1. þ.e. klukku RSF.
7.6. Hjálp [Hjálp] :
Upplýsingar um Fisknet.
8. Sjálfvirkt rof á tengingu og slökkt á Fiskneti.
Kaupandi getur valið um það að Fisknet rjúfi tengingu eftir að síðasta stæða í hefur verið boðin upp.
9. Skilaboð frá uppboðshaldara.
Uppboðshaldari
getur sent skilaboð til allra tengdra kaupenda. Skilaboðin birtast yfir
kaupáætlun, eftir að kaupandi hefur lesið skilaboðin lokar hann
glugganum með [F9] eða smellir á OK hnappinn. Skilaboðin hafa engin
áhrif á gang klukkunnar.
10. Breyting á stæðum í uppboði.
Ef
breyting verður á stæðum eftir að uppboð er hafið þá sér kaupandi þær
breytingar í neðstu stæðu stæðulista á klukku. Þær breytingar sem
gerðar hafa verið eru lýstar upp með gulum bakgrunni.

English



