Leiðbeiningar um uppsetningu Fisknets
Hugbúnaður

2. Að ná í hugbúnað.

Áður en þú getur tengst þarf að:
  • Hlaða niður uppboðsklukkunni (bara gert einu sinni) og setja upp á tölvuna
  • Hafa samband við RSF og fá úthlutað notandanafn og lykilorð

Hlaða niður Fisknet:

  1. Smella á “Hlaða niður uppsetningu á Fiskneti fyrir Windows 98/2000/XP
  2. Þá opnast glugginn [File Download - Security Warning]
  3. Smellt er á [Run]
  4. Þá opnast glugginn [Internet Explorer - Security Warning]
  5. Smellið aftur á [Run] 
  6. Smellt á [Next -> Hlaða inn -> Loka]
  7. Nú er Fisknet tilbúið. 
Ef þú ert með Windows Vista eða Windows 7 er uppsetningin ekki alveg sjálfvirk.  Smellt er á Fisknet fyrir Windows Vista/Windows 7. Þá þarf að vista forritið í möppunni c:\fisknet.  Hafið samband við RSF ef þetta er ekki alveg ljóst.

Ef Fisknet opnast ekki þá er farið inn í möppuna c:\Fisknet og forritið opnað þaðan með því að tvísmella á fisknet.exe (eða fisknet).Ef þú ert með Windows Vista eða Windows 7 er uppsetningin ekki alveg sjálfvirk.  Þá þarf að vista forritið í möppunni c:\fisknet.  Hafið samband við RSF ef þetta er ekki alveg ljóst.

Byrjað er á því að fara í [Stillingar] þá opnast glugg:



Notandanafn Hér er slegið inn úthlutuðu notandanafni, t.d. 0701B412
Tungumál Íslenska
Fisknet IP A – tenging: 10.2.61.21
Fisknet Port 8313



Ofangreind uppsetning er aðeins framkvæmd einu sinni fyrir hverja tölvu.

Að uppsetningu lokinni er gott að prófa að tengjast. Ef allt er í lagi þá ætti kaupandanúmer og heimild að birtast neðst á skjá og stæðulisti að hlaðast inn.

2.1. Að ræsa forritið.

Klukkan er ræst með því að tvísmella á fisknet.exe í Fisknet möppunni. Einnig er ágætt að búa til flýtivísun (shortcut) á forritið.

2.1.1. Uppfærslur.

Ef uppfæra þarf klukkuforrit (ný útgáfa komin út) þá fær kaupandi skilaboð um það frá RSF strax að lokinni innskráningu. Um tvennskonar skilaboð getur verið að ræða.

  • Viðbætur, kaupandi er beðinn um að uppfæra við fyrsta tækifæri.
  • Forritsútgáfa þín er úrelt, þú verður að nálgast nýja útgáfu til að tengjast uppboðinu.

Þegar ný útgáfa er vistuð þá skal gæta þess að vista í rétta möppu og jafnframt að vista yfir eldri útgáfu. Varast skal að hafa fleiri en eina útgáfu vistaða á tölvunni.

2.1.2. Skráning inn í Fisknet.

Þegar Fisknet hefur hefur verið ræst og kaupandi skráð sig inn með aðgangsorði er hann skráður sem þáttakandi í viðkomandi uppboði og fær sendar allar nauðsynlegar upplýsingar til þátttöku. Það innifelur m.a.

  • Heimild til að taka þátt í uppboði
  • Heimild til að kaupa fyrir undirkaupendur
  • Upplýsingar um ábyrgðarstöður
  • Upplýsingar um önnur uppboð sem kunna að vera í gangi.
  • Söluupplýsingar