Leiðbeiningar um VPN samband

Fyrir þá notendur sem tengjast EKKI RSF

Þeir fiskkaupendur sem tengjast með router (ADSL, SDSL, ISDN) út á Internetið fá mjög líklega úthlutað prívat IP tölu sem er notuð til samskipta á milli tölvu notandans og Internet þjónustuaðilans. Ef það er tilfellið þá getur viðkomandi tölva ekki tengst Fiskneti á venjulegan hátt yfir Internetið heldur verður að setja upp svo kallað VPN (Virtual Private Networking) samband á milli tölvunnar og Fisknets.

Það er gert á eftirfarandi hátt:

  1. Smella á "Hlaða niður uppsetningu á VPN fyrir Windows 98/2000/XP"
  2. Þá opnast glugginn [File Download - Security Warning]
  3. Smellt er á [Run]
  4. Þá opnast glugginn [Internet Explorer - Security Warning]
  5. Smellið aftur á [Run]
  6. Smellt á [Næst -> Hlaða inn -> Loka]
  7. Nú hefur þú ræst uppsetninguna á VPN Client.
  8. Svo bara Next.Next. osfrv (Athugið ef að það kemur upp villumelding á XP út af LOGO ýtið á Continue)
  9. Endurræsa vélina!
  10. Ræsa VPN Dialer (Start -> Programs -> Cisco Systems VPN Client -> VPN Client)
  11. Svo er það "connect"!
  12. Þá ætti vélin að vera komin í samband.
  13. Nú þarf að slá inn Username og Password - Hringið í RSF til að fá það uppgefið (mismunandi fyrir hvern notanda)
Ef þú ert með Windows Vista eða Windows 7 þá smellirðu á Hlaða niður uppsetningu á VPN fyrir Windows Vista(Windows 7
Ef þú lendir í vandræðum með þessa uppsetningu þá hafðu samband við RSF.