RSF er þjónustufyrirtæki íslensku fiskmarkaðanna og tengir saman 15 fiskmarkaði á 30 stöðum.
RSF sér um reikningagerð, afreikningagerð og dreifingu á fjármagni til seljenda, markaða, hafna, sjóða og svo frv.
Kaupendur á íslensku fiskmörkuðunum (RSF) þurfa að hafa bankaábyrgð eða greiða kaup sín fyrirfram.
Kaupanda er gefið númer. Til þess að gera það þarf RSF eftirfarandi upplýsingar:
Kennitölu
Nafn
Heimilisfang
VSK-númer
Símanúmer
Faxnúmer
Netfang
Nafn tengiliðs
Netfang RSF er rsf@rsf.is
Kaupavikan hefst á föstudegi og endar á fimmtudegi.
Reikningarnir eru síðan sendir út daginn eftir á föstudegi og gjalddagi er síðan fimmtudaginn þar á eftir.
Greiðslufrestur er því vika.
Greiðsluseðlar
birtast í netbanka kaupanda sem sýna reikninga sem þeir skulda. Ef
kaupendur nota ekki greiðsluseðlana í netbankanum til að greiða
reikninga, inn á þá eða til að greiða fyrirfram, skulu þeir nota
kaupendanúmerið til að auðkenna greiðslurnar.
Hér er listi yfir heiti sviðsins sem nota á í netbönkunum:
KB Banki = Seðilnúmer
Landsbanki / fyrirtækjabanki = Stutt tilvísun
Landsbanki / heimabanki = Tilvísun
Sparisjóður = Tilvísun
Íslandsbanki = Stutt skýring (tilvísun)
Notið alla 6 stafina 8xxxxx!
RSF
er með þessu að auka sjálfvirkni og hraða við skráningu á greiðslunum
inn í kerfi sitt og ef seðlarnir í netbanka eru ekki notaðir og/eða
tilvísunin er röng gæti það seinkað skráningu eða jafnvel skráist
rangt. Samt sem áður hvetur RSF kaupendur til að greiða ekki á síðustu
stundu til að tryggja sig.
Hægt er að nálgast meiri upplýsingar hér:
http://rsf.is/sida/almennar_upplysingar
http://rsf.is/sida/fisknet_verklagsreglur
http://rsf.is/sida/skilmalar
http://rsf.is/sida/gjaldskra
Til að kaupa á internetinu með Fiskneti eða Fjölneti, þarf kaupandinn að hafa háhraðatengingu amk ISDN, helst ADSL.
Til að ná í nauðsynlegan hugbúnað, Fisknet ferðu á vefsíðu RSF. http://rsf.is/sida/fisknet
Til að tengjast með Fiskneti þarf að nota VPN. Það er gert með því að smella á takkann hér vinstra megin á síðunni "Tengjast VPN".
Þegar lokið er við að hlaða niður hugbúnaðinum er haft samband við RSF til að fá notendanöfn og lykilorð.
Tölvan skal hafa amk Pentium 4 örgjörva, ekki eldra stýrikerfi en Windows 2000, amk 128 mb RAM og 1024x768 upplausn
Reikningsnúmer RSF er: 0146-26-202, kt. 480592-2479.
Einföld ábyrgð:
STAÐUR OG DAGSETNING.
Reiknistofa fiskmarkaða hf, kt. 480592-2479
Iðavöllum 7
Pósthólf 45
232 Reykjanesbæ
Ábyrgð nr: xxxxxxxx
Samkvæmt starfsreglum yðar sem staðfestar hafa verið af sjávarútvegsráðherra, ber kaupanda á uppboðsmarkaði tengdum yður að setja greiðslutryggingu til yðar fyrir væntanlegum viðskiptum sínum við yður.
Greiðslur vegna viðskiptanna fara fram í síðasta lagi á fimmtudegi í vikunni eftir að uppboð fer fram.
Að beiðni FYRIRTÆKIS kt. xxxxxx-xxx9, (heimilisfang) og í samræmi við ofanritað ábyrgist SELVOGSBANKI (bankanúmer, heimilisfang) hér með gagnvart yður greiðslu á allt að kr: xxxxxxxxx gegn eftirtöldum skjölum:
1. Skriflegri yfirlýsingu yðar um að þér hafið krafið FYRIRTÆKIÐ um greiðslu og að FYRIRTÆKIÐ sé þar með í vanskilum.
2. Afrit af viðkomandi reikningum.
Ábyrgðin fellur úr gildi þann xx.xx.xx.
Mál vegna ábyrgðar þessarar má reka fyrir ……..
f.h. SELVOGSBANKA

English




