Öll viðskipti um uppboðskerfið Fisknet og viðskiptanetið Fjölnet eru
háð notenda- og samningsskilmálum (hér eftir nefndir „skilmálar“) sem
hér koma fram.
Til þess að fá aðgang að Fiskneti og Fjölneti
samþykkir þú að vera bundin(n) af þessum skilmálum og til að fara eftir
öllum viðeigandi lögum og reglum. Þú ábyrgist að hafa heimild að lögum
til að samþykkja þessa skilmála fyrir sjálfa(n) þig eða þann aðila sem
þú kemur fram fyrir. Verði einstök ákvæði skilmála þessara lýst ógild,
ólögmæt eða ekki verður unnt að leita fullnustu þeirra að einhverju
leyti, skal það engin áhrif hafa á gildi, lögmæti og fullnustumöguleika
annarra ákvæða skilmálanna. Hvers konar undantekningarnar og
takmarkanir eiga aðeins við að því marki sem íslensk lög heimila.
Ábyrgð, viðurkennd af RSF, eða fyrirframgreiðsla skal liggja fyrir áður en kaup eiga sér stað í uppboðskerfum RSF.
RSF
er heimilt að loka tafarlaust og án viðvörunar á viðskipti ef ábyrgð er
ekki lengur gild, eða ef innistæða er ekki fyrir kaupum, ef reikningur
er ekki greiddur á gjalddaga og einnig ef vart verður misnotkunar á
tölvu- og/eða uppboðskerfi RSF.
RSF veitir engar upplýsingar um viðskiptavini sína, aðrar en þær sem lög kveða á um, án samþykkis viðkomandi.
Kaupandi
ber sjálfur ábyrgð á þeim tengi- og tölvubúnaði sem hann notar til að
tengjast RSF. Nánari leiðbeiningar þar um má sjá á heimasíðunni
www.rsf.is. RSF ber á engan hátt ábyrgð á tjóni sem notandi vefsíðu RSF
kann að verða fyrir vegna vanþekkingar notanda, misskilnings,
misnotkunar á vefsíðunni eða vegna þess að tölvubúnaður notanda virkar
ekki sem skyldi. Þá ber kaupandi einnig ábyrgð á öllum gerðum sínum við
notkun Fjölnetsins og Fisknetsins. Kaupandi gerir sér grein fyrir að
virkni fyrrnefndra kerfa á heimasíðu RSF er háð ýmsum þáttum sem varða
ýmsa aðila, svo sem fiskseljendur og fiskmarkaði. RSF ber ekki ábyrgð á
neinu því tjóni sem kann að hljótast af hugsanlegri bilun í umræddum
kerfum, rangra upplýsinga sem þar birtast eða af því að kerfin hafa
ekki á allan hátt virkað sem skyldi.
Kaupandi skal tengjast
uppboði tímanlega, kanna ábyrgðarstöðu sína og kynna sér stæðulista þar
sem fram koma upplýsingar um það sem í boði er.
Eftir úthlutun
lykilorðs ber kaupandi ábyrgð á því að vörslu þess séu fullnægjandi og
að aðrir aðilar geti ekki nýtt sér það. Öll viðskipti sem stofnað er
til með innslætti lykilorðs eru á ábyrgð kaupanda.
RSF rekur
reiknistofu uppboðsmarkaða og kerfin Fisknet og Fjölnet, en ber enga
ábyrgð á starfsemi fiskmarkaðanna eða gjörðum starfsmanna þeirra.
Starfsfólk fiskmarkaða hefur aðgang að tölvukerfi RSF samkvæmt
samkomulagi þar um. Allar upplýsingar sem starfsfólk fiskmarkaða slær
inn í tölvukerfið og varða viðskiptavini fiskmarkaðanna eru algjörlega
á ábyrgð viðkomandi fiskmarkaðar.
Um allar leiðréttingar sem
varða fiskkaup skal kaupandi snúa sér til viðkomandi fiskmarkaðar. RSF
kemur ekki að deilumálum sem varða viðskipti kaupenda við einstaka
fiskmarkaði.
Um aðra skilmála vísast til laga nr. 79/2005 um uppboðsmarkaði sjávarafla og reglugerða sem settar eru með heimild í þeim lögum.
|