Uppboðskerfi RSF lýsing

Fisknet

Uppboðskerfið Fisknet samanstendur af tölvukerfinu Tengli sem er sölu- og uppgjörskerfi Reiknistofu fiskmarkaða hf (RSF) og uppboðsklukku sem hönnuð er af Aucxis í samvinnu við RSF.
Í Tengli er haldið utan um allar upplýsingar viðskiptamanna bæði kaupendur og seljendur, þar eru skráðar inn söluupplýsingar og prentaðir út reikningar og afreikningar.
Uppboðsklukkan er verkfæri sem gerir RSF það mögulegt, að birta þátttakendum í uppboði upplýsingar um það sem er til sölu á aðgengilegan og skýran hátt, auk þess sem kaupendum er gert kleift með tengingu við Internetið að taka þátt í uppboði frá vinnustað eða heimili.
Í stuttu máli gerist það þannig að Fisknet sækir upplýsingar í Tengil og birtir kaupendum, bæði upplýsingar um það sem er til sölu í væntanlegu uppboði, auk upplýsinga um peningalega stöðu viðkomandi kaupanda. Meðan á uppboði stendur sækir Fisknet upplýsingar um stöðu ábyrgðar, breytingar sem kunna að verða á stæðulista, heimildir kaupenda o.fl. Einnig skilar klukkan öllum söluupplýsingum yfir í Tengil jafnóðum og stæður seljast.
Klukkan frá Aucxis er notuð við uppboð víða um heim og hefur sannað sig sem áreiðanlegur kostur, kaupendur sem uppfylla þau skilyrði sem RSF gerir til tölvu og tengibúnaðar eiga allir að hafa jafna möguleika á að bjóða í, hvar svo sem þeir eru staddir.


Smellið á myndir til að stækka


Fjölnet

Fjölnet stendur fyrir “fjölbreytt viðskipti á Internetinu”. Hugmyndin að baki Fjölneti er sú að veita fiskmörkuðum möguleika á auknum viðskiptum með fisk, fiskafurðir, aðrar vörur og þjónustu á sínu markaðssvæði. Ákveðið var að taka í fyrstu fyrir ákveðinn þátt fiskviðskipta þ.e. svokallaðan gámafisk. Innlendir fiskkaupendur hafa lengi kvartað undan því að hafa ekki möguleika á því að bjóða í þann fisk sem sendur er á erlenda fiskmarkaði og seldur þar. Með Fjölneti teljum við okkur opna á þann möguleika að seljendur og kaupendur geti átt gagnvirk rafræn samskipti. Samskipti sem vonandi leiða í einhverjum tilvikum til hagstæðra viðskipta fyrir alla sem að þeim koma.Fjölnet er hrein viðbót við núverandi uppboðskerfi, Fisknet, og kemur á engan hátt í staðinn fyrir það. Fjölnet er tæknilega sniðið að sama búnaði og viðskiptamenn okkar nota í dag fyrir Fisknet, og er því engin þörf á viðbótar tölvu né tengibúnaði. Til að fá aðgang að Fjölneti gilda sömu reglur og gilda almennt um viðskipti við fiskmarkaði og RSF.
Þótt Fisknet og Fjölnet séu í eðli sínu hvorutveggja sölukerfi er samt töluverður munur á þeim. Í uppboðskerfinu Fisknet, er verið er að selja mikinn fjölda boða á stuttum tíma. Algengt er að daglega séu seld 500-1000 boð í Fiskneti, meðalþyngd í hverju boði er 2-300 kg.
Í tilboðskerfinu Fjölnet er hinsvegar hugmyndin að selja mikið magn í einu, t.d. heilan gám eða bátsfarm. Verður það hlutverk fiskmarkaðanna að afla seljanda og skrá afla þeirra til sölu í Fjölnet. Seljendum verður gefin kostur á því að setja sölukröfur sem verða að nást áður en af sölu verður. Kaupendum verður gefin kostur á að leggja inn tilboð sem metin eru af Fjölneti. Nái þeir kaupendur sem bjóða í að uppfylla þær sölukröfur sem settar eru verða til viðskipti.