News

Árið 2009!

 - 11. jan, 2010

Langhæsta söluverðmæti frá upphafi!
Hæsta meðalverð frá upphafi!
Fjórða stærsta árið í magni!


Verðmæti
Selt var fyrir 21.782 milljónir á árinu 2009. 
Þetta er 28,7% meira en á árinu 2008 (16.927 milljónir), en það er það næstmesta.



Meðalverð

Meðalverðið á árnu 2009 var 210,52 sem er í fyrsta skipti sem það fer yfir 200 kr. 
Meðalverðið var næsthæst á árinu 2008 eða 179,58.
Þetta er hækkun um 17,2%.


 

Magn
Seld voru 103.469 tonn árið 2009, sem er 9,8% meira en á árinu 2008 (94.263 tonn). 
Þetta er það fjórða mesta frá upphafi, ef loðna er ekki tekin með. 
Mest var selt árið 2006 eða 106.536 tonn.

 

Smellið á myndir til að stækka

Hægt er að sjá ýmsar tölfræðiupplýsingar hér á síðunni 
Einnig er hægt að prenta út magn, verðmæti og meðalverð á hinum ýmsu tegundum á hinum ýmsu mörkuðum.