43% hækkun á meðalverði milli ára í janúar
- 6. feb, 2010Meðalverð
Meðalverð á fiskmörkuðunum í janúar var 284,72 kr sem er 43% hærra en í sama mánuði í fyrra (199,19). Þetta er einnig hæsta meðalverð sem sést hefur i einum mánuði frá upphafi.


Verðmæti
Selt var fyrir 2.424 milljónir í janúar. Þetta er langhæsta verðmæti sem sést hefur í janúarmánuði. Næsthæst var það í janúar 2009, 1.885 milljónir. Aukningin milli ára er 28,6%.

Magn
Seld voru 8,515 tonn sem er 10% minna en í janúar 2009, 9.462 tonn. Salan i janúar 2009 var einmitt sú mesta frá upphafi, en janúar 2009 er sú þriðja mesta.
Smeillið á myndir til að stækka
Hægt er að sjá ýmsar tölfræðiupplýsingar á síðu RSF, www.rsf.is.
Einnig er hægt að prenta út magn, verðmæti og meðalverð á hinum ýmsu tegundum á hinum ýmsu mörkuðum á síðunni. http://rsf.is/sida/samantekt

Íslenska







