Skip to main content
RSF

Tilkynning frá Landflutningum-Samskip

Skrifað Föstudaginn 31. janúar 2014, kl. 08:43

Landflutningar-Samskip hafa það að markmiði að veita viðskiptavinum góða þjónustu á sanngjörnu verði og eru áætlanir settar upp með það að leiðarljósi. Til að lágmarka kostnað við fiskflutninga frá Þingeyri, Flateyri og Suðureyri verður ekið þaðan samkvæmt áætlun félagsins, þ.e. á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl. 14.00. Aukist eftirspurn frá þessum markaðssvæðum verður brugðist við með tíðari ferðum.

Nánari upplýsingar veitir Kristín Hálfdánsdóttir, rekstrarstjóri Landflutninga á Ísafirði í síma 458 8855