Nýtt nafn: Fiskmarkaður Norðurlands ehf í stað Fiskmarkaðs Dalvíkur ehf
Skrifað Miðvikudaginn 14. maí 2014, kl. 09:01
Fiskmarkaður Dalvíkur ehf hefur skipt um nafn og heitir núna Fiskmarkaður Norðurlands ehf.
Skammstöfun hans í kerfi RSF hefur þar af leiðandi verið breytt í FMN.
Markaðurinn hefur einnig flutt í nýtt húsnæði að Ránarbraut 1 á Dalvík.