Skip to main content
RSF

Tilkynning frá Fiskmarkaði Íslands hf

Skrifað Miðvikudaginn 21. október 2015, kl. 13:01

Að gefnu tilefni um stór orð.

Samtök fiskframleiðenda og útflytjenda (SFÚ) beina spjótum sínum að Fiskmarkaði Íslands (FMÍS) í yfirlýsingu dagsettri 20. október 2015 og það reyndar ekki í fyrsta sinn. Tilefnið nú er annars vegar viðtal við framkvæmdastjóra FMÍS í blaðinu Sóknarfæri í sjávarútvegi í september sl. og hins vegar ítrekaðar ásakanir í garð FMÍS fyrir stærðarflokkun fisks og fyrir breytingar á gjaldskrá félagsins.

Ég vil ekki munnhöggvast við höfunda yfirlýsingar SFÚ en tel rétt að eftirfarandi komi hér fram af minni hálfu, að gefnu tilefni:

  1. Við hjá FMÍS könnumst vel við kröfur um tilteknar breytingar á stærðarflokkun fisks en ætlum ekki að verða við þeim, enda færi slíkt á svig við lög um stjórn fiskveiða.

  2. Stjórn FMÍS kynnti nýja gjaldskrá í janúar 2014. Þá hafði uppbygging gjaldskrár verið óbreytt í meginatriðum frá stofnun félagsins 1991 og kominn tími til að laga hana að margvíslegum breytingum í rekstrarumhverfinu. Söluþóknun var lækkuð úr 4% í 2% af aflaverðmæti en gjöld fyrir löndun, vigtun og móttöku hækkuð í samræmi við aukinn kostnað við að veita þá þjónustu.

  3. Kjarnastarfsemi stjórnar og stjórnenda FMÍS er, hefur verið og verður, að efla fiskmarkaði, starfsemi þeirra og samstarf. Það höfum við gert í eigin ranni, á vettvangi Reiknistofu fiskmarkaða og í samfélaginu yfirleitt. Þar hefur framkvæmdastjóri okkar verið í fremstu röð, ötull og kappsamur, eins og þeir þekkja sem fylgjast með starfsemi fiskmarkaða og sjálfri þjóðfélagsumræðunni.

  4. Ég sé að SFÚ vitnar sjaldnast í óbreytt orð framkvæmdastjóra FMÍS í Sóknarfærisviðtalinu heldur túlkar ummæli hans og leggur svo út af eigin túlkun. Á köflum finnst mér reyndar svo langt gengið í þeim efnum að erfitt sé að staðreyna að átt sé við sama viðtal og ég las í nefndu blaði! Framkvæmdastjóranum eru lagðar til skoðanir umfram tilefni í hans eigin orðum. Það er miður og ekki til fyrirmyndar.

Guðmundur Smári Guðmundsson,
stjórnarformaður Fiskmarkaðs Íslands,
20. október 2015