Skip to main content
RSF

Prufum aftur á miðvikudaginn

Skrifað Föstudaginn 25. nóvember 2016, kl. 08:27

RSF mun vera með prufuuppboð á nýju RSF klukkunni miðvikudaginn, 30/11, kl. 9:30.
Helsta nýjungin er að undirkaupendur eru komnir á nýju klukkuna hjá kaupendum sem eru með þá.
Við munum einnig prófa byrjunarverðið. Nú eru fleiri atriði tekin inn í ákvörðun byrjunarverðs. Bætum við veiðarfæri og aldri.
RSF biður þá sem ekki ennþá hafa skoðað klukkuna að láta okkur virkja hana hjá sér og taka þátt.
Ef kaupendur verða varir við eitthvað óvenjulegt eða villur þá látið okkur vita.