Skip to main content
RSF

Kennslumyndband á RSF klukku – Prufa á fimmtudaginn

Skrifað Mánudaginn 16. janúar 2017, kl. 07:58

RSF hefur útbúið kennslumyndband vegna nýja uppboðsforritsins. Það er hægt að sjá það hér .

Við munum prófa aftur á fimmtudaginn (19/1), kl. 9:30.
Nú fer að líða að innleiðingunni og ráðlegt fyrir kaupendur að kynna sér hvernig klukkan virkar. Við höfum fengið nokkrar ábendingar, sumar mjög gagnlegar.
Sumt af því er komið inn og annað í farvatninu. Hún verður auðvitað áfram í stöðugri þróun.
Við hvetjum þess vegna kaupendur til að benda okkur á ef þeir hafa hugmyndir eða athugasemdir við kerfið. Ef þið hafið ekki virkjað klukkuna hjá ykkur ennþá þá gerið það og endilega prófið á fimmtudaginn.