Skip to main content
RSF

Takk fyrir að prófa - Yfirfarið búnað

Skrifað Föstudaginn 20. janúar 2017, kl. 08:08

Við þökkum þeim sem gáfu sér tíma til að prófa “platuppboðið” í gær. Þessar prufur hafa mikið vægi fyrir okkur. Fengum ábendingar í gær eftir uppboðið sem við erum að skoða.

Til að hugbúnaðurinn virki sem best er mjög mikilvægt að búnaðurinn sem kaupendur nota sé góður. Mikilvægari en áður. Hægar gamlar tölvur með gömlu stýrikerfi eru ekki ásættanlegar. Einnig er góð nettenging mjög mikilvæg.
Ítrekum hugbúnaðarkröfur sem upptaldar eru í handbókinni.

Við munum prófa næst 2/2 nk og það verður síðasta alvöru prófið fyrir innleiðingu. Við viljum að allir kaupendur prófi þá sem möguleika hafa á því til að sjá hvernig kerfið virkar við venjulegar aðstæður og þeir séu tilbúnir fyrir skiptin.