Skip to main content
RSF

Tilkynning frá Umbúðamiðlun

Skrifað Föstudaginn 1. febrúar 2019, kl. 15:49

Tilkynning frá Umbúðamiðlun

Nú um mánaðarmótin flutti Umbúðamiðlun starfsemi sína frá Fornubúðum 3, Hafnarfirði á nýjan stað.
Ný staðsetning Umbúðamiðlunar er við Korngarða 5-7, Reykjavík (Sundahöfn).
Mun móttaka og afgreiðsla kerja fara fram þar frá og með mánudeginum 4. febrúar 2019.
Við þessar breytingar verður hætt að taka við kerjum á Fiskmarkaðnum í Hafnarfirði.
Umbúðamiðlun býður viðskiptavinum sínum upp á smölun á kerjum.
Óski viðskiptavinir eftir slíkri þjónustu hafið þá samband við Inga þjónustustjóra Umbúðamiðlunar í síma 8982407.