Skip to main content
RSF

RSF.is 1 árs í dag

Skrifað Laugardaginn 20. apríl 2013, kl. 14:03

Þann 20. apríl 2012 var ný heimasíða RSF sett í loftið, ásamt nýju bakvinnslukerfi sem tók við af Tengli og heitir Boði. Þetta eru búnir að vera frábærir 12 mánuðir og við, starfsfólk Reiknistofu fiskmarkaða, erum þakklát fyrir allan þann stuðning og hvatningu sem við höfum fengið frá okkar viðskiptavinum og samstarfsfólki.

Við munum halda stöðugt áfram að þróa og bæta heimasíðuna og okkar kerfi og hlökkum til að geta kynnt þær nýjungar sem við erum að vinna í.

Takk fyrir!
- Starfsfólk RSF