Tilkynning frá FM Vestfjarða: Allur fiskur frá Bolungarvík kemst suður í dag (27. des).
Tilkynning frá FM Vestfjarða: Allur fiskur frá Bolungarvík kemst suður í dag (27. des).
Allur fiskur frá Bolungarvík fer suður í kvöld.
Fiskmarkaður Vestfjarða vill koma því til skila til kaupenda að allur fiskur kemst suður í kvöld.
iTUB hefur beðið RSF að koma á framfæri tilkynningu til kaupenda í sambandi við leigu og skil á kerum sínum.
Tilkynninguna má lesa í heild sinni hér.
Tilkynning frá FMÍS:
Smyril Line Ísland ehf hefur fest kaup á húsnæði Fiskmarkaðs Íslands við Hafnarskeið 11 í Þorlákshöfn.
Með þessum kaupum er félagið að koma sér upp bættri starfsaðstöðu í bænum enda hafa umsvifin aukist töluvert frá því að vikulegar siglingar hófust milli Þorlákshafnar og Rotterdam með M/V Mykinesi
Fiskmarkaður Íslands hf. og Smyril Line hafa átt farsælt samstarf frá því að siglingar hófust þar sem Fiskmarkaðurinn hefur þjónustað Smyril Line við hleðslu vagna.
Fiskmarkaður Íslands hf. mun starfa áfram með óbreyttu sniði í húsnæðinu um sinn. Viðskiptavinir Fiskmarkaðs Íslands munu fá alla þjónustu fyrirtækisins áfram með sama hætti og verið hefur. Fiskmarkaður Íslands hf. fyrirhugar í kjölfarið að koma sér upp húsnæði sem hæfir betur starfseminni í Þorlákshöfn
Skrifstofa Smyril Line í Þorlákshöfn mun flytja í nýja húsnæðið um áramótin.