Engin slæging verður í boði hjá Fiskmarkaði Vestmannaeyja frá og með deginum í dag.
Engin slæging verður í boði hjá Fiskmarkaði Vestmannaeyja frá og með deginum í dag.
Gjöld fyrir sölu per dag eru komin inn. Athugið að gjöldin eru ekki með VSK og það er eingöngu hægt að sjá gjöld á stæðum sem búið er að reikningsfæra. Ef þið þurfið að sjá gjöld á dögum sem er ekki búið að reikningsfæra er hægt að nota bráðabirgðaafreikninginn sem kom inn í dag.
Bráðabirgðaafreikningar eru komnir inn. Einnig munu bráðabirgðareikningar, kostnaður per dag fyrir fisksölu og afreikningar koma inn í dag eða á morgun, eftir því sem tími gefst.
Við biðjumst velvirðingar á töfinni á þessum listum en ástæðurnar voru tæknilegar og ekki í okkar höndum.
Vegna flutninga verður Slægingarþjónusta Suðurnesja lokuð föstudaginn 4. maí til sunnudagsins 6. maí. Opna á nýjum stað á mánudag, Brekkustíg 22-24 í Njarðvík.
Uppboðið í dag gekk mjög vel og við virðumst hafa náð að laga það sem olli seinkuninni í gær. Einnig eru eftirfarandi lagfæringar og endurbætur komnar á heimasíðuna:
Kaupendur / Seljendur
Flutningsaðilar
Markaðir
Ásamt litlum lagfæringum og breytingum hér og þar sem ekki er vert að telja upp. Við vonum að þið séuð sammála að síðan er alltaf að verða betri og betri og svo hlökkum við til að bæta við nýjum möguleikum sem ekki var mögulegt að bæta við í gamla kerfinu.
Þá er tveimur uppboðum lokið síðan að nýja kerfið fór af stað og getum við fagnað því að þetta hefur gengið bara virkilega vel. Við munum að sjálfsögðu halda áfram að endurbæta hluti og tökum góð skref í framþróun með þessu nýja kerfi.
Heimasíðan hefur einnig verið í stöðugum uppfærslum síðan að kerfið fór í gang og höfum við sett inn nýja útgáfu á u.þ.b. 1 klst. fresti síðan um hádegi í gær. Meðal nýjunga sem hafa komið inn í gær og í dag eru:
Ásamt alveg heilum helling af endurbætum og lagfæringum. Við munum að sjálfsögðu halda áfram að laga og bæta og við höldum að þið munuð vera mjög ánægð með það sem er í vændum á heimasíðu RSF.