Skip to main content
RSF
Fréttir og tilkynningar
06.05.2015

þeir sem óska eftir slægingu í Grundarfirði í dag fá ekki fiskinn fyrr en eftir hádegi á morgun fimmtudag.

29.04.2015

Opnunartími Fiskmarkaður Þórshafnar á Húsavík er eftirfarandi:

Mánudaga til föstudaga: 8:00 - 17:00

Laugardögum frá 8:00 - 17:00 þegar uppboð er.

Ef þjónusta er veitt utan opnunartíma leggst á aukagjald kr. 5.000

Ef seljendur vilja selja samdægurs skal tilkynna söluna fyrir kl. 12:00 og vera búnir að landa kl. 16:00

29.04.2015

Eftirfarandi er tilkynning frá Eimskip vegna mögulegra verkfalla:

Kæri viðskiptavinur,

Ef til fyrirhugaðs verkfalls af hálfu aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins (SGS) kemur, mun það hafa víðtæk áhrif á starfsemi innanlandsflutninga okkar út um allt land þar sem fjölmörg stéttarfélög á landsbyggðinni eru aðilar að SGS. Þannig mun áhrifa gæta hjá bílstjórum og vöruhúsastarfsmönnum á okkar helstu afgreiðslum á landsbyggðinni. Ef til verkfalls kemur leggjum við okkur fram við að veita lágmarksþjónustu á landsbyggðinni, en jafnframt gæta þess að verkfallsreglur séu virtar.

Fyrirhugað verkfall SGS mun ekki hafa áhrif á þjónustu innanlandsflutninga í Reykjavík. Dreifingarmiðstöð Eimskips Flytjanda í Klettagörðum verður opin og vörudreifing í Reykjavík verður einnig með hefðbundnum hætti.

Vinnustöðvunin sem hefst 30. apríl mun valda röskun í áætlunarflutningum og töfum á afgreiðslu sendinga í innanlandsflutningum.

Stöðvun á vinnu í maí mun hafa veruleg áhrif á þjónustu Eimskips en þó með mismunandi hætti á hverju landssvæði.

Ekki verður hægt að sinna gámaflutningum innan svæðis á Vestfjörðum, Norðurlandi eystra og Austfjörðum á meðan verkfall stendur yfir.

Í meðfylgjandi skjali er yfirlit sem sýnir áhrif á þjónustu Eimskips á hverju svæði ef til verkfalls aðildarfélaga SGS kemur.

Stöðvun á vinnu aðildarfélaga SGS í apríl og maí 2015:

30. apríl 2015 Allsherjar vinnustöðvun frá klukkan 12:00 á hádegi til miðnættis sama dag.
6. maí 2015 Allsherjar vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis (allur 6. maí).
7. maí 2015 Allsherjar vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis (allur 7. maí).
19. maí 2015 Allsherjar vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis (allur 19. maí).
20. maí 2015 Allsherjar vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis (allur 20. maí).
26. maí 2015 Ótímabundin vinnustöðvun hefst á miðnætti aðfaranótt 26. maí 2015.

Við fylgjumst með þróun mála og upplýsum ykkur um stöðuna.

Smellið hér til að sjá PDF skjal með útlistun á áhrifum verkfalls á áfangastaði.

28.04.2015

RSF hafa borist margar fyrirspurnir um fimmtudaginn 30/4 ef það kemur til verkfalls sem allar líkur eru á.

Eftirfarandi eru upplýsingar frá nokkrum mörkuðum hvernig þessu verður háttað hjá þeim ef til þessu kemur:

Einnig er óvíst með flutning frá mörgum stöðum þar sem starfsfólk flutningsaðila verða í verkfalli. Kaupendur verða á athuga með sína flutningsaðila. Ef flutningsaðilar eru í verkfalli mun aflinn verða fluttur á sunnudaginn 3/5, nema annað sé tekið fram. Sjá frétt frá Samskipum hér

– Fiskm. Norðurlands:
Fiskur á uppboði og afgreiddur úr húsi.

– Fiskm. Patreksfjarðar:
Lokað

– Fiskm. Siglufjarðar:
Lokað.

– Fiskm. Vestmannaeyja:
Gæti orðið fiskur á uppboði, afgreiddur úr húsi. Fiskur sem fer upp á land fer með fyrstu ferð á laugardeginum.

– Fiskm. Vestfjarða:
Lokað

– Fiskm. Austurlands:
Opið og það fer 1 bíll frá hvoru flutningsfyrirtæki.

– Fiskm. Djúpavogs:
Opið og fiskur afgreiddur úr húsi.

14.04.2015

Í dag (14/4) og á morgun raskast áætlun Herjólfs vegna árlegra stoppdaga. Ferjan siglir ekki seinni ferð í dag og enga ferð á morgun. Sjá nánar hér

25.03.2015

Undanfarnar vikur hefur RSF verið að skipta yfir í nýjan og öflugri vélbúnað. Uppboðið, vefsíðan og fleira er þegar komið yfir, en á sunnudaginn (29/3) munum við leggja lokahönd á það og færa kerfi fiskmarkaðanna, Boða og gagnagrunninn yfir. Þess vegna mun verða truflun á tengingu við vefsíðuna frá kl. 10:00 til 14:00 á sunnudaginn. Biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.