Engin slæging á Skagaströnd mánudaginn 17.09.12 og þriðjudaginn 18.09.12
Engin slæging á Skagaströnd mánudaginn 17.09.12 og þriðjudaginn 18.09.12
Frá og með mánudeginum 17. september n.k. verður opið allan sólarhringinn á starfsstöð FMS í Hafnarfirði. Nýr opnunartími er því frá kl. 06:00 á mánudagsmorgni til kl. 08:00 á laugardagsmorgni.
Allar frekari upplýsingar um opnunar- og afgreiðslutíma gefur Kristján Ragnarsson stöðvarstjóri í síma 846-2890.
Komin er nýjung á síðuna fyrir kaupendur. Hægt er að sjá nánari útlistun á gjöldum og ýmsum upplýsingum bakvið reikninga. Þetta er fundið með því að fara í Kaupendur -> Reikningar og smella á “Sjá nánar” hjá einhverjum reikningi.
Þar er tafla sem heitir Gjöld á fisktegund og þar er hægt að sjá nákvæmlega gjöld per hverja fisktegund fyrir sig. Ef smellt er á “Skoða færslur” opnast gluggi þar sem sýnt er hvert einasta gjald sem er sett á þessa fisktegund á þessum reikningi.
Margt annað er að sjá á þessari síðu, eins og t.d. greiðsludaginn, skiptingu á fisktegundum, önnur gjöld, greiðslustöðu og hversu mikið er eftir að borga. Einnig er hægt að sækja PDF útgáfu af reikningnum með því að smella á Sækja PDF þarna neðst.
Við hvetjum kaupendur til að skoða þetta og annað á vefsíðunni. Við höfum verið að bæta hana og breyta til að viðskiptavinir okkar geti betur glöggvað sig á viðskiptum sínum við okkur. Nýja kerfið er öðruvísi uppbyggt en gamla kerfið og stundum erfitt að hafa hlutina nákvæmlega eins, en möguleikarnir eru margfalt meiri. Með tímanum stefnum við á að upplýsingar og listar á síðunni verði mun betri og öflugri en áður.
Við vonum að þetta geti nýst ykkur vel!
Gjaldið er kr. 1.500 á mánuði án vsk, en rukkaðar verða kr. 6.000 út árið ef ekki er búið að skrá netfangið fyrir 31. ágúst. Síðan verður rukkað á 6 mánaða fresti (9.000). Þetta verður rukkað fyrirfram.
Kaupendur geta skráð netfang þess eða þeirra (komma á milli) sem eiga að fá reikninginn í einkaaðgangum undir “Stillingar” eða sent á RSF (rsf@rsf.is).
Reikningurinn mun verða sendur á þau netföng um leið og hann er útbúinn.
Einnig er hægt að nálgast reikninginn í einkaaðgangi.
RSF bendir kaupendum, sem hafa ekki einkaaðgang nú þegar, að sækja um hann. Það er gert hér.
Hann verður sendur í tölvupósti. Kaupendur geta skráð netfang þess eða þeirra (komma á milli) sem eiga að fá reikninginn í einkaaðgangum undir “Stillingar” hér á vefsíðu RSF eða sent á RSF (rsf@rsf.is). Reikningurinn mun verða sendur á þau netföng um leið og hann er útbúinn. Einnig er hægt að nálgast reikninginn í einkaaðganginum.
RSF bendir kaupendum, sem hafa ekki einkaaðgang nú þegar, að sækja um hann.
Þeir sem vilja fá reikninginn sendan í bréfapósti áfram geta fengið það gegn gjaldi.
Hér er smá listi yfir þær lagfæringar og/eða endurbætur sem hafa komið inn á síðuna síðastliðinn einn og hálfan mánuð.
Kaupendur:
Seljendur:
Allir:
Ásamt mörgum öðrum litlum lagfæringum og breytingum. Við vonum að þið getið nýtt ykkur þessar lagfæringar og endilega hafið samband ef það er eitthvað sem betur má fara.