Skip to main content
RSF
Fréttir og tilkynningar
31.01.2015

„Þann 1. febrúar verður breyting á áætlun Ragnars og Ásgeirs við afgreiðslu á fisk frá Snæfellsnesi. Sá fiskur sem ekki er tilbúinn til afgreiðslu á fiskmörkuðum á Snæfellsnesi kl. 1:00 (eftir miðnætti) verður lestaður í bíla kl 6:00 eða 5 klst. seinna. Nánari upplýsingar veitir Ásgeir Ragnarsson í síma 892-1817“

06.01.2015

Vegna slæmrar veðurspá má reikna með að það verði tafir á afhendingu fisks frá Snæfellsnesi í kvöld og í nótt.

Kveðja; Ásgeir Þór Ásgeirsson Verkstjóri

22.12.2014

Starfsfólk RSF óskar viðskiptavinum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla

18.12.2014

Ekki slægt á Skagaströnd frá 18.des. til 21.des .Opna aftur fyrir slægingu 22.des.

17.12.2014

Það verður ekkert uppboð 23/12 - 26/12, en laugardaginn 27/12 verður uppboð.
Síðan verða uppboð 29/12 og 30/12, en ekki gamlársdag eða nýársdag!
Skrifstofa RSF verður lokuð þá daga sem ekkert uppboð er.

15.12.2014

Útflutningur á kerum Umbúðamiðlunar - skipulagsbreyting

Útflutningur á kerum Umbúðamiðlunar er með öllu óheimill nema að höfðu samráði við Umbúðamiðlun ehf (s: 555-6677).
Vegna verklagsbreytinga við vigtun afla og breytinga á flutningsferlum til erlendra aðila hefur UMB ákveðið að breyta sínum verklagsreglum vegna útflutnings UMB kera.
Það er gert til að ekki þurfi að banna alfarið útflutning þeirra.
Breytingin á við um alla útflytjendur, hvort sem þeir hafa þegar samning við UMB varðandi útflutning eða ekki.
UMB mun á næstu dögum hafa samband við þá aðila sem þegar eru með samning vegna útflutnings, vegna breytinganna.