Skip to main content
RSF
Fréttir og tilkynningar
15.12.2014

Útflutningur á kerum Umbúðamiðlunar - skipulagsbreyting

Útflutningur á kerum Umbúðamiðlunar er með öllu óheimill nema að höfðu samráði við Umbúðamiðlun ehf (s: 555-6677).
Vegna verklagsbreytinga við vigtun afla og breytinga á flutningsferlum til erlendra aðila hefur UMB ákveðið að breyta sínum verklagsreglum vegna útflutnings UMB kera.
Það er gert til að ekki þurfi að banna alfarið útflutning þeirra.
Breytingin á við um alla útflytjendur, hvort sem þeir hafa þegar samning við UMB varðandi útflutning eða ekki.
UMB mun á næstu dögum hafa samband við þá aðila sem þegar eru með samning vegna útflutnings, vegna breytinganna.

11.12.2014

Engin ferð var til Reykjavíkur frá Snæfellsnesi í nótt (aðfaranótt 11.desember)

08.12.2014

Vegna slæmrar verðurspá má búast við að einhverjar tafir gætu orðið á afhendingu fisks frá Snæfellsnesi í kvöld/nótt á meðan stormurinn gengur yfir. (Mánudaginn 8/12/2014)

21.11.2014

Eimskip verður með ferð 22.nóv og 23.nóv frá Bolungarvík / Ísafirði.

17.11.2014

Ekki verður slægt á Skagaströnd 17.nóv.-19.nóv. Byrjar aftur fimmtudaginn 20.nóv.2014

22.10.2014

Laugardagsuppboðin hefjast fyrsta vetrardag, 25. október nk.
Þau verða að venju á sama tíma og önnur uppboð, kl. 13:00.
Hægt er að sjá uppboðsdaga vetrarins á síðunni undir “Uppboð - Uppboðsdagatal”.